Bað um ljósakrónu en fékk þrekhjól
Fjársjóði er að finna á mörgum stöðum. Marga er að finna í Góða hirðinum. Ég hef ekki tölu á því hvað ég hef fundið margt skemmtilegt í þeim góða. Mér til mikillar skelfingar uppgötvaði ég núna um daginn að ég fór sennilega í fyrstaskipti í Góða hirðinn fyrir að verða 13 árum síðan og keypti
Fólétta
Mér varð títthugsað (ofthugsað?) til þess þegar ég var ólétt núna síðast hvort það væri ekki réttlætanlegt að frá svona 4. mánuði meðgöngu og þar til barn hefur lært að ganga mætti kona fá svona fatlamerki í bílinn sinn og fá þ.a.l leyfi til þess að leggja í blá bílastæði við búðir og annarsstaðar þar
Dömubleiur
Vissir þú að það er hægt að kaupa dömubindi með lykt? Finnst annars alltaf svolítið erfitt að eiga við þetta orð.. dömubindi. Finnst bindi allataf eiga við eitthvað utanum háls.. kannski er þetta tilkomið af því að bindin sitja við legháls, hver veit.
En að dömubindum með lykt! OJ! Ég hef ekki notað dömubindi í 13
Bómullarbrúðkaup
Síðastliðinn 16.júlí eru bara tvö ár síðan ég gekk inn félagsheimilisgólfið með föður minn mér til halds og trausts (svo ég myndi ekki roðna fyrir allan peninginn og falla svo í yfirlið, það var svo margt fólkið og allir með tvö augu sem gláptu á mig með óskiptri athygli… og allir mjög nálægt), í áttina
Flösuvarta
OJ! Hvað í fjandanum er það eiginlega? Flösuvarta? Bjakk. Ég er engu að síður með nokkrar. Já, eftir að hafa lesið einhverskonar ófögnuð um myndun sortuæxlis í húð á meðgöngu þá gat ég ekki annað en farið í annað (fer reglulega) húðtékk.
Á öllum mínum meðgönum hef ég fengið nýja fæðingabletti, það ku vera tilkomið af
Hreiðrun
Er eiginlega að vona að ég sé komin í hreiðurgerð. Það mun vera vísbending um að ég megi eiga von á gríðarlegum verkjum rétt um það bil bráðum.
Hér hefur auðvitað allt verið á algjörum rúi og stúi en pípararnir sætu hafa lokið við uppgröft, lagnaísetningu og yfirgröft og steipun bæði inná litla baði, í þvottahúsinu
Var búin að týna myndavélasnúrunni.
Núna um þetta leiti er bara einn almanaksmánuður þar til ég má eiga von á fjórða erfingja krúnunnar. Ég er búin að reikna allar mögulegar útkomur á því hvenær þetta barn mun kíkja niður um klofið á mér, en auðvitað get ég ekki sagt til um hvaða dag það mun koma. Ef ég myndi vita
Heklaðar borðtuskur
Túlípanahekl- frí uppskrift
Allir þurfa borðtusku, því ekki að hafa hana fallega í flottum litum og skemmtilega að nota? Það væri alveg hægt að spyrja sig hvort það borgi sig að kaupa garn í tusku og eyða svo helling af tíma í að
Froska-teppi
Ætli við fáum að sjá margar útgáfur af þessu dásamlega sæta froskateppi sem Handprjón.is stendur í að þýða uppskrift af þessa dagana… ég vona það. Ferlega fallegt heklað froskateppi!
Hin margrómaða íslenska lopapeysa
Lopapeysa, ullarpeysa, poteitó potató :)
Íslenska lopapeysan á ekki svo langa sögu, kom ekki fram fyrr en á 6.áratugnum en enginn veit hvernig. Á veraldarvefnum stendur einhversstaðar að kona Halldórs Laxness hafi sótt sér munstrið á ferð sinni um Chile um árið, líka að listmálarinn Louisa Matthíasdóttir hafi búið til fyrsta lopapeysumunstrið. Sumstaðar er talið að munstrið
Uglu-æðið
Mikið uglu-æði hefur gripið um sig í heklheimum. Þetta eru alveg æðislegar fígúrur og hugmyndaflugið virðist eiga sér engin takmörk þegar kemur að því að töfra fram eitt og annað sniðugt með uglumótívinu.
Ugluteppi, ugluhúfur, amigurumi uglur, uglutöskur, uglulegghlífar, uglu eyrnalokkar og ég gæti lengi talið.
Hér erusvo mjög sætar uglur sem má hengja
Amigurumi
Amigurumi er tegund af hekli þar sem heklaðar eru fylltar fígúrur. Orðið amigurumi er blanda af japanska orðinu „ami“ sem þýiðr heklað eða prjónað og orðinu „nuigurumi“ sem þýðir fyllt fígúra.
Amigurumi er oftast heklað með nál sem er aðeins minni en maður myndi venjulega nota við garnið, en það er gert til þess að fá