Handverkskúnst

Það er með eindæmum ánægjulegt að sjá hvað það eru margar (ég hef enn ekki rekist á karlmann sem bloggar um handavinnu sína) sem halda úti bloggi eða vefsíðu með handavinnunni sinni.

Flestum tilfellum eru þetta prjóna eða hekl blogg, læðast inn föndur og saumablogg.

Handóð er ein af þeim sem er mörgum kunnug, enda kemur í ljós að margar þeirra sem lærðu að hekla t.d á netinu hafa lært helling af henni. Bæði á námskeiðum og ekki síst á blogginu hennar.

Leit þar við um daginn, sem aldrei fyrr og komst að því að hún og móðir hennar eru komnar með nýja síðu sem heitir Handverkskúnst. Þar kennir sannarlega ýmissa grasa, leiðbeiningar, uppskriftir til sölu og fríar og svo, sem er ekki síst, hugrenningar um bæði prjón og hekl.

Þær eru líka með Facebook síðu, endilega kíkja þangað :)