Mikið uglu-æði hefur gripið um sig í heklheimum. Þetta eru alveg æðislegar fígúrur og hugmyndaflugið virðist eiga sér engin takmörk þegar kemur að því að töfra fram eitt og annað sniðugt með uglumótívinu.

Ugluteppi, ugluhúfur, amigurumi uglur, uglutöskur, uglulegghlífar, uglu eyrnalokkar og ég gæti lengi talið.

Hér erusvo mjög sætar uglur sem má hengja upp til skrauts gefa krökkum til að leika sér með eða t.d skreyta í garðinum á sumrin.

hekluð ugla

Uppskriftin er af síðu Bunny Mummy og er auðveld og uglurnar fljótgerðar.