hekl-a-pinterestÞað er hægt að læra allt á internetinu! Það er auðvitað ekki það sama að læra að hekla á hörðum skrifborðsstól  fyrir framan Youtube af konu einhversstaðar annarsstaðar í heiminum og af t.d ömmu sinni meðan notið er gæðastunda í eldhúsinu meðan hellt er uppá kaffi.

EN! fyrir þær/þá sem ekki lærðu að hekla í eldhúsinu hjá ömmu yfir rjúkandi kaffi, þá eru þarna úti bæði Youtube og svo alveg aragrúi af bloggsíðum, bæði íslenskum og erlendum.

Eitt í uppáhaldi er Pinterest. Þar hafa t.d hellingur af íslenskum (aðallega) konum safnað sér flottum hekl hugmyndum í hin svokölluðu borð á Pinterest. Þetta er alveg rosalega gaman að skoða og safna sér hugmyndum að komandi hekl verkefnum.