About Gudmundsdottir

Ég get ómögulega ábyrgst að þú ekki farir að gráta því þú hefur fengið svo mikinn aulahroll. Ég get heldur ekki ábyrgst að þú móðgist ekki eða pissir í buxurnar af hneykslan. .. ég ætla að skrifa flestum stundum bara það sem mér er hugleikið þá stundina. Ég hef síðan tröllatrú á því að fólk hafi rétt á, og geri það reyndar ótt og títt, að skipta um skoðun.

Fráslitin

Ég hef alveg rosalega mikla þörf fyrir að ræða hinn mikla aðskilnað við hann sem átti að vera minn til æviloka en var það svo bara í lítil 8 ár. Við vorum mega sæt saman, æðisleg reyndar og það er enginn þarna sem mér þykir

2017-01-17T13:55:43+01:0014. janúar 2010|Categories: Lífið og tilveran|0 Comments

Merkt er markilegt

Mér finnst margt alveg óheyrilega merkilegt. Tildæmis kemur það mér alltaf á óvart hvað mér getur liðið stórkostlega vel og hvað mér getur liði dæmalaust óvel.

Stundum er ég með sorg í hjartanu og get hreift hvorki legg né lið. Heimilið verður að einhverri klessu (gerist svosum líka yfir verkefnaskil..) og það er líkt og það

2015-05-19T12:46:10+02:0013. janúar 2010|Categories: Lífið og tilveran|0 Comments

Það er ekki þú…

stress_421265

Er ekkert undarlegt að það hafi gerst oftar en einusinni að viðkomandi hafi sagt „það er ekki þú“.. og verið að tala um eigin getu til að geta það ekki?

Eruði margar þarna úti sem einusinni flaug það í hug að það

2017-01-17T13:55:44+01:0013. janúar 2010|Categories: Lífið og tilveran|1 Comment

30

Maður lifandi hvað ég hef pælt mikið í þessari tölu. Aldurslega séð þá.

Hef komist að ýmsu um þennan aldur og eftir miklar vangaveltur um að vera strax orðin að gamalmenni með nokkur grá hár, (nokkur í mínu hári, ég hafði aldrei ímyndað mér að ég væri sköllótt með örfá hár þegar ég yrði öldruð) vera

2015-05-19T12:46:10+02:0012. janúar 2010|Categories: Lífið og tilveran|5 Comments

Ég er á einhverju.

… og Kaupmannahöfn líka og gjörvöll Danmörk bara. Ekki veit ég hvað það á að þýða veðrið hér. Alveg ekki það sem ég á að venjast, eða það er reyndar rugl, því ég er jú Íslendingur.. en ekki miðað við áralanga veru mína hérna megin.

Veðrið er reyndar alveg frábært, svona þegar kuldinn ekki smýgur gegnum

2015-05-19T12:46:08+02:007. janúar 2010|Categories: Lífið og tilveran|0 Comments

Aðfangadagur 30

Það var að sjálfsögðu hamagangur á hóli yfir á Sambýlinu á aðfangadag. Tréð var að vanda að drukkna úr gjöfum og nettur spenningur í öllum.  Hitt Fíbblið og rest þeirra sem koma til með að erfa ríkidæmi mitt fengu frábærar jólagjafir.

2017-01-17T13:55:44+01:0025. desember 2009|Categories: Lífið og tilveran|2 Comments

Segi öllum vekjaraklukkum heimilisins upp störfum í amk einn sólarhring

Það er ekkert skrítið við það að ég hafi fyrir ekki svo löngu síðan búið með tveimur fyrrverandi ástmönnum mínum og sé nú komin í sambúð með konu.

Það er ekkert undarlegt að ég hafi í fyrstaskipti í að ég held næstum því heilan mánuð verið að elda mat hér heima hjá mér, bara núna áðan.

Ekkert

2017-01-17T13:55:44+01:0021. desember 2009|Categories: Lífið og tilveran|2 Comments

60.000 manns fyrir utan hjá mér..!

Ég vissi ekki að ég ætti von á svona mörgum gestum af tilefnisleysu. Ég varð alveg rasandi hissa og hljóp til og setti ketilinn á og rótaði í skápnum eftir instant kaffinu og te, svo eg gæti boðið gestunum inn..

Það er auðvitað bara rugl og varla að ég kæmi inn til mín 60 manns þó

2017-01-17T13:55:44+01:0013. desember 2009|Categories: Lífið og tilveran|2 Comments

Í líkamsræktinni

Mér til mikillar undrunar er næstum því ár síðan ég byrjaði að gerast áskrifandi að líkamsræktinni hér í næsta húsi. Fyrst um sinn mætti ég nú bara sirka einusinni í viku en síðan hefur komum mínum farið fjölgandi hægt en örugglega. Ég get held ég sagt að ég sé orðin svolítið þekkt í ræktinni, enda

2015-05-19T12:46:07+02:004. desember 2009|Categories: Lífið og tilveran|1 Comment

Ný hreyfing stofnuð

Ég er í ágætu stuði akkúrat núna þrátt fyrir að vera þessa dagana hálf græneygð og útá þekju.  Ég stofnaði hreyfingu um daginn þar sem er bara ein regla og hún er að ef maður segist ætla að gera eitthvað eða fær hugmynd og er að tala um að það væri nú gaman að framkvæma

2017-01-17T13:55:44+01:003. desember 2009|Categories: Lífið og tilveran|1 Comment

Æ..fékk þetta sent í tölvupósti, finnst það sniðugt

1.    Lífið er ekki sanngjarnt, en það er samt ljúft
2.    Þegar þú ert í vafa, taktu þá bara lítið skref
3.    Lífið er of stutt til að eyða tíma í að hata einhvern
4.    Vinnan þín mun ekki sjá um þig þegar þú verður veik(ur).  Vinir þínir og fjölskylda munu gera það.  Vertu því í sambandi við

2015-05-19T12:46:07+02:0024. nóvember 2009|Categories: Lífið og tilveran|1 Comment

Jólagjafalistinn

Þá er komið að því að gefa út jólagjafalistann. Krakkajólagjafalistinn er hér fyrir ofan. Minn kemur hér:

*Nýtt hjól

*hnakkur

*handföng

*standari

*lugtir

*bjalla

*Myndavélataska fyrir Nikon

*Linsa á téða myndavél

*Þrífótur

*Hárgreiðslustyrkur

*Þættirnir Ástríður

*Allar seríurnar af  The New Adventures of Old Christine

*miði á Þorrablót á Hvammstanga

*gjafabréf hjá flugfélögum sem fljúga til Íslands

*Orkidea

*Nótnastatíf

*Gsm sími

Og svo kemur afmælisgjafalistinn aftur en með smá uppfærslu:

*sleif

*mæliskeiðar

*græjur

*teiknipad við tölvuna (hafið bara

2015-05-19T12:46:06+02:0022. nóvember 2009|Categories: Lífið og tilveran|1 Comment

Hitt Fíbblið er sko ekkert blávatn!

Nei, það er bara þannig. Þessi stelpa hefur afskaplega mikið power. Hlakka til að sjá hana þegar hún verður eldri…hvað í ósköpunum ætli hún eigi eftir að taka sér fyrir hendur. En það var þannig í fyrradag að það var svo mikill vindur að nr.1 ég hélt að við myndum öll fjúka heim til Íslands,

2017-01-17T13:55:44+01:0020. nóvember 2009|Categories: Lífið og tilveran|4 Comments

Bústýra upp um fjöll og firnindi

Nú hef ég verið í föðurlandinu… á arfa margan máta hef ég verið í föðurlandinu. Fyrir það fyrsta var ég stödd á Íslandi fyrir ekki svo löngu og þá einmitt gisti ég heima hjá Yfirpabba og svo var ég allstaðar bara á sokkabuxunum. Já ég var ekki feimin við að vaða um Hvammstanga á sokkabuxunum,

2017-01-17T13:55:44+01:0012. nóvember 2009|Categories: Lífið og tilveran|1 Comment

Á heimaslóðum

Ég er á heimaslóðum núna. Mörgum meira að segja. Fór fyrst norður í land og hitti þar fyrir dásamlega náttúruna sem hafði uppi ótrúlega dásamlega stillu. Stillu samt með krafti í.

Brenndi svo suður og hitti þar fyrir borgina mína. Reykjavík er finnst mér núna, amk niðrí miðbæ og vesturbæ þar sem ég er jú uppalin

2015-05-19T12:46:04+02:003. nóvember 2009|Categories: Lífið og tilveran|1 Comment
Go to Top