1.    Lífið er ekki sanngjarnt, en það er samt ljúft
2.    Þegar þú ert í vafa, taktu þá bara lítið skref
3.    Lífið er of stutt til að eyða tíma í að hata einhvern
4.    Vinnan þín mun ekki sjá um þig þegar þú verður veik(ur).  Vinir þínir og fjölskylda munu gera það.  Vertu því í sambandi við þau.
5.    Greiddu kreditkortareikninginn þinn í hverjum mánuði
6.    Þú þarft ekki að vinna öll deilumál – samþykktu að vera ósammála
7.    Gráttu með einhverjum.  Það er betra en að gráta einn
8.    Það er allt í lagi að reiðast út í guð.- – –  Hann þolir það
9.    Safnaðu fyrir elliárunum og byrjaðu með fyrsta launaseðlinum
10.    Þegar kemur að súkkulaði, þá er mótstaða árangurslaus
11.    Semdu frið um fortíðina, þannig að hún eyðileggi ekki samtíðina
12.    Það er í lagi að láta börnin þín sjá þig gráta
13.    Berðu ekki þitt líf saman við annarra.  Þú hefur ekki hugmynd um hvernig þeirra líf er
14.    Ef samband þarf að vera leynilegt, þá áttu ekki að vera í því
15.    Allt getur breyst á augabragði.  En hafðu ekki áhyggjur
16.    Dragðu andann djúpt að þér – það róar hugann
17.    Losaðu þig við allt sem ekki er nýtilegt, fallegt eða skemmtilegt
18.    Það sem ekki drepur þig gerir þig bara sterkari
19.    Það er aldrei of seint að hafa skemmtilega barnæsku. En sú seinni er alveg undir þér komin og engum öðrum
20.    Þegar kemur að því að sækjast eftir því sem þú elskar við lífið, taktu þá aldrei Nei sem svar
21.    Brenndu kertin, notaðu fínu rúmfötin, farðu í fínu nærfötin. – – – Sparaðu þetta ekki fyrir sérstök tilefni – Í dag er sérstakt tilefni
22.    Undirbúðu þig ávallt vel – láttu svo strauminn taka þig
23.    Vertu óvenjuleg(ur) í dag – – – Bíddu ekki eftir gamals aldri til að klæða þig í fjólubláan lit !
24.    Mundu að mest áríðandi kynfærið er heilinn
25.    Enginn ræður yfir hamingju þinni nema þú
26.    Rammaðu inn allar svokallaðar þjáningar með orðunum . . . . „Mun þetta skipta einhverju máli eftir 5 ár“ ?
27.    Hafðu lífið alltaf að leiðarljósi
28.    Fyrirgefðu öðrum allt
29.    Það sem aðrir hugsa um þig kemur þér alls ekki vð
30.    Tíminn læknar svo til allt. . . . Gefðu tímanum tíma
31.    Hversu gott eða slæmt sem ástandið er,. . .  þá mun það breytast
32.    Taktu þig ekki of hátíðlega, . . . enginn annar gerir það
33.    Trúðu á kraftaverk
34.    Guð elskar þig vegna þess hver hann er, ekki vegna þess sem þú gerðir eða gerðir ekki
35.    Endurskoðaðu ekki lífið, . .  Vertu til staðar og taktu þátt í því
36.    Að verða gamall er betra en hinn kosturinn – – – að deyja ungur
37.    Börnin þín fá bara eina barnæsku
38.    Allt sem skiptir máli í lokin er að þú hafir elskað
39.    Farðu út á hverjum degi , – –  kraftaverk bíða alls staðar
40.    Ef við myndum öll kasta áhyggjum okkar í stafla og sæjum stafla hinna, . . þá myndum við hrifsa okkar til baka
41.    Öfund er tímasóun.- – – Þú hefur nú þegar allt sem þú þarfnast
42.    Það besta er ef til vill einnig ókomið
43.    Það skiptir ekki máli hvernig þér líður, – – – farðu á fætur, klæddu þig og sýndu þig.
44.    Láttu undan
45.    Lífið er ekki skreytt með slaufum, – –  en samt er það gjöf