Maður lifandi hvað ég hef pælt mikið í þessari tölu. Aldurslega séð þá.

Hef komist að ýmsu um þennan aldur og eftir miklar vangaveltur um að vera strax orðin að gamalmenni með nokkur grá hár, (nokkur í mínu hári, ég hafði aldrei ímyndað mér að ég væri sköllótt með örfá hár þegar ég yrði öldruð) vera komin með appelsínuhúð og signa píku fyrir aldur fram, hrukkur, hætt að nenna að raka dæmið, plokkarinn orðin veskis vara saman með símanum mínum og húslyklum, inn raðast bankatilboð fyrir fólk á aldrinum 29 til 55 ára.. menn eru ekki beinlínis í röðum við gluggann minn og vilja endilega inn..og ég gæti haldið áfram..komst hinsvegar að því eftir alla hugleiðsluna hér í glugganum mínum að:

  • Ég er ekkert með neina ándskotans appelsínuhúð
  • Gráu hárin eru samlita aflituðu strípunum… það sér þau enginn
  • sigin píka?? hvað er það eiginlega, er reyndar viss um að mamma hefur séð nokkrar svoleiðis.. í vinnunni þá, amk af þessum óskapar (ó-skapa-r…jæks) sögum sem ég hef neyðst til að sitja undir
  • Hrukkur eru flottar. Ég kann til dæmis mikið betur að meta andlit á mönnum sem hafa smá drætti.. eru ekki s.s eins og barnsrassar fattaru
  • raka dæmið.. ég er auðvitað ekki smástelpa og heldur enginn lúði í náttúrulegum lopabúningi.. ég hef mig snyrtilega til fara innan klæða sem utan.
  • ég ætla ekki að ræða þetta með plokkarann
  • ég hef ekkert að gera með nein banka tilboð, ég hef allan þann pening sem ég þarf núna.
  • ég bý á 5. hæð á danskan mælikvarða (6. á íslensku) það væri bara assnalegt ef ég ætlaði að fara að deita einhvern sem næði allaleið þangað upp að kíkja á gluggann minn..

Niðurstöður eru þær að vera þrítug, þriggjabarna og þráskilin er bara ótrúlega þrábært (ég segi og skrifa að það er ekki alla daga þannig sko..slaka á…). Ég á jú þrjú börn sem eru mér afar kær og þau eru frábær öll sem eitt. Fráskilin.. ég ræði það síðar. ÞRÍTUG… hrópa húrra fyrir því, mér eru allir vegir færir, ég er hvorki of ung né of gömul til að gera nokkurn skapaðan hlut,  ég get bæði verið með mönnum sem eru mér yngri og eldri, aldursbilið sem ég hef til umráða er gígantískt.