Ok.. í framhaldi af hugleiðingunni um laukinn og hvernig fjarvera peninga úr mínu lífi er að stjórna því hvað mér finnst um sjálfa mig.

Getur verið að almættið hafi verið eitthvað að ruglast og í stað fjár hafi hann óvart gert.. HÁR!?!

Fyrir utan að vera íklædd lopabuxum sem ná frá tánöglinni á stórutá og upp að …jahh, eiginlega eru þetta lopasmekkbuxur, þá hef ég, eins og allir vita, rosa mikið af hári á hausnum, ekki nóg með það heldur er ég með skeggvöxt á við 15 ára dreng og nýjasta nýtt er að ég er  loðin á fingrunum.

Ruglaðist hann í rýminu og ætlaði mér að vera maður, leit aðeins frá að athuga hin börnin sín og bara ..úbbs…

Hárin á fingrunum sjást orðið mjög vel þar sem þau eru svört.

Ætli svarið við vandræðum mínum og andlegu ófrelsi í þessum efnum sé kannski vax, en ekki vextir?