Er það??? Þarf ég að sýna á mér rassinn aftur? Sjiiiittt hvað ég er komin með mikið ógeð á mörgum hlutum. Ég er komin með algert ógeð á öllum þessum pistlum sem flæða um veraldarvefinn, um allt sem er að fara til fokkans fjandans heima á Íslandi.

Er mér sama um allt þar, gætir þú spurt þig. Nei. En ég er að drepast úr leiðindum yfir kvartinu og öllum fáránleikanum. Mér finnst ekkert undarlegt að fólk kvarti, því margt er jú fáránlegt = niðurskurður allstaðar…en það er komið nóg af kvarti. Allt hefur sinn endir.

En fólk! Núna er þetta svona. Sorglegt en líka satt. Gerum eitthvað.

Verum eins og Hans Klaufi, glöð og úrræða góð. Flytjum í Sjálfbæ! Gerum þetta bara sjálf. Sleppum því að láta aðra ráðstafa lífi okkar. Byrjum að senda bjartsýnisorku frá okkur út í Alheiminn. NÚNA! JÁ!

Þeir sem  nota Facebook geta byrjað á því að breyta öllum fýlubrókarstatusum í eitthvað skemmtilegra. Ekki endilega þvaðra um hvað þú varst nú dugleg/ur í dag heldur kannski bara að benda á eitthvað meiriháttar eða segja í einni setningu eitthvað sem við erum þakklát fyrir.

Að lokum vill ég þá þakka þeim sem fann upp blýantinn. Þvílíkt snilldar áhald.