Ohh, ég hef úrskurðað að ég hef óvart hent gleraugunum mínum. Annað hvort það eða þá að eitthvað vinkvendi ákveðins barns sem hér býr hefur rænt brillunum.

Það er orðið dulítið langt síðan og ég er komin með króníska píringu í augum og tíðan hausverk. Það er ekki gott fyrir mig þar sem ég ætlaði eiginlega að halda áfram að sjokkera fólk þegar ég segi hve mörg börn ég á og lít bara ennþá út fyrir að vera 25.  Æh. Þetta fer illa með egóið.

Ég hef, sem og oft áður, opnað styrktar reikning fyrir nýjum gleraugum. Ég hef ekki oft opnað reikning fyrir gleraugum, en ég hef oft opnað styrktarreikning. Og ekki misskilja, reikningurinn er sami reikningur og ég er alltaf að nota, það er ekki nýr reikningur við hvert atriði sem ég þarf styrk fyrir.