Sjálf á ég afmæli í dag.
Eins og er kunn staðreynd þá varð ég ekki hrukkótt eða hokin eða neitt af því sem ég taldi upp að Bóndinn væri enda er ég ennþá bara tuttugu og eitthvað.
Ein saga í tilefni aldursbreytinga:
Ónefndur sveitarstjóri búsettur á Hvammstanga hringdi í mig þegar ég bjó líka þar (þá árinu yngri en ég er nú). Ég svaraði með hallói en hann sagði “já…er mamma þín heima”…..
Það á enginn eftir að taka eftir því þegar ég verð gömul.