Að-venta. Venta på = bíða. Sem sagt Aðbíða. Afhverju heitir ekki Aðventan á íslensku Aðbíðan. Fyrsti í aðbíðu, annar í aðbíðu, síðasti sunnudagur í aðbíðu. Aðbíðukrans, aðbíðuskreyting, aðbíðutónleikar.
Tilefnið er að sjálfsögðu að það er fyrsti í aðventu á morgun. Í því tilefni bjuggum við Gummi til aðventu skreytingu. Hún inni heldur að sjálfsögðu fjögur kerti og greni, köngla og kúlur. Hún er æði flott. Á meðan við gerðum skreytingu, var Sunneva úr heiminum. Það er stundum svo merkilegt hvað það er ekki hægt að ná sambandi við hana. Þá er hún kannski bara að tala útí loftið, grenja í leik, hlægja, skamma…og allt svona venjulegt í barnaleik. En þegar kemur aðþví að kalla á hana, þá gerist ekkert. Hún er í alvörunni í eigin heimi. Ég vona að þessi hæfileiki hennar eigi eftir að koma sér vel á lífsleiðinni…

Það var julefrokost í vinnunni í kvöld. Ég fór ekki. Ég hef alltof mikið að gera. Svo er ég að vinna svo marga daga í röð og er e-h svo mikið frá heimili að ég er komi með heimþrá…það kann að hljóma furðulega miðað við lýsingar mínar á hreinlæti heimilisins hér í pistli að neðan.

Við keyptum líka aðventuljós í dag, það er alltaf svo ágætur friður yfir aðventu ljósum. Ég man að á Melhaganum þegar komið var fram á morgnana á aðbíðunni þá var þetta svo fallegt ljós í eldhúsglugganum. Þá man ég líka eftir ferðum kannski austur á Breiða og svo þegar komið var til baka í Reykjavík þá taldi ég öll aðventu ljósin sem ég sá. Ég mátti hafa mig alla við þegar við keyrðum fram hjá Elliheimilinu Grund… þar eru jú frekar margir með ljós í glugganum sínum.

Ég hafði planlagt að setja seríur í glugga hér í dag, það er jú 1.des. En það er sem ég segi, samsæri gegn mér í verslunum í Kaupmannahöfn! Það eru ENGAR jólaseríur sjáanlegar, engar. Ég veit ekki hvað á að gera eiginlega. Við jóluðum því ekki meira í dag en aðbíðuskraut og aðbíðuljós.

Allir að aðbíða, allir að bíða….mjá