Sprengja-12-ara

Þessi varð 12 ára í fyrradag. 12 ára. Ég varð álíka hissa fyrir einu og hálfu ári þegar þá Búnglingurinn varð 12 ára. Hvernig geta svona hlutir verið að koma manni á óvart ár eftir ár?

Við héldum hér át-dag af tilefninu og svo verður stelpupartý hér eftir nokkarar vikur. Atvinna Eiginmannsins og haustfrí er fyrir okkur.

Mér líkar svo vel við þessa stelpuskottu. Hún er alltaf (ok.. alltaf fyrir utan þegar hún er beðin um að gera eitthvað sem hún ekki nennir, eins og að taka til eða fara út með ruslið) hress og með grín og svo ljúf og góð við aðra.

Til hamingju með afmælið elsku Sprengja :)

Að öðru afmælisbarni, en það er systir mín, hún á afmæli í dag og er þar með eitt af þremur október afmælisbörnum sem ég elska mest í heimi.

Hún er líka hress, umhyggjusöm, blíð og góð og ég held að hún sé mögulega bara stundum önug OG! Hún er að gera upp hús!

bryndis-31