Nei sko! Er ég ekki bara með til sölu allt sem þú þarft fyrir jólin!

Útikerti, bæði stór og lítil, 8stk hátíðarkerti í pakka, rauð og hvít, 3 stk jólapappírsrúllur  (10m hver) og svo eitthvað stórskemmtilegt sem heitir jólakisi, en í honum eru 3 jólapappírsrúllur, slaufur, merkimiðar, límbandsrúllur og límbandsstatíf.

Síðast en ekki síst þá er hægt að panta hjá mér líka Voga flatkökur. Innfæddir segja þær bestu flatkökurnar (ég náttúrulega veit að flatkökur ömmu Hlíf eru  mikið betri, þær eru bara ekki til sölu).

  • Útikerti lítil: 350
  • Útikerti stór: 700
  • Hátíðarkerti 8stk: 1500
  • Jólapappír 3 rúllur: 2000
  • Jólakisi: 3500
  • Flatkökur: 1000

Þetta allt til sölu í fjáröflunarskyni fyrir 5.flokk karla í fúsboll hér í Kebblavík, Búnglingurinn er í þeim flokki, ég myndi aldrei vera að selja eitthvað fyrir einhvern 5.flokk nema það kæmi mér við.

Ég tek niður pantanir í síma 8234334, á nitta@nitta.is eða á fésbókinni, eða andlititilandlitis. Vörurnar afhendast svo í byrjun des.