Það eru þvílík vonbrigði að pissa þegar maður er ekkléttur. Konu (hér er illa óviðeigandi að segja “manni er..”) er alveg svo mál að ætla mætti að hún hefði aldrei pissað áður, eða að minnsta kosti ekki síðan um hádegi í gær, fer svo á klósettið og það sem af gekk hefði getað passað í hálfan desilíter.

Má ég frekar biðja um almennilega bunu!

5 mínútum síðar er konu síðan orðið jafnvel meira mál en ef hún hefði aldrei pissað áður og ekki maðurinn hennar heldur.