image

Er ólétt kona eign almennings?   Fleiri ófrískar konur kannast eflaust við að þegar fer að sjást á þeim að þá er eins og fólki, en samt aðallega öðrum konum, finnist í algjöru lagi að þreifa á þeim. Man þegar ég gekk með mitt fyrsta að ég var að vinna í Blómavali, þar sem ég komst í tæri við aðrar manneskjur mun oftar en ég geri í vinnunni minni í dag, og þar fannst fólki barasta í lagi að teygja sig innfyrir búðaborðið og klappa mér á naflanum.

Ég er alls ekki fyrir klapp og myndi sennilega teljast, svona við fyrstu sýn, frekar köld manneskja. Ekki hafa áhyggjur, ég er ljúf og mjúk inn við beinið. En af bláókunnugri manneskju.. ó mig auma.

Annað, sem er síðan í algjörri andstöðu við þetta er að fólk sem maður hefur almennt samskipti við og hefur fyrir venju að bjóða manni með eða eitthvað steinhættir því með öllu. Ekki að það hafi verið upp á mér typpið í heilar fyrstu 18-20 vikurnar af þessari blessuðu meðgöngu, en  maður vill samt vera spurður.

Mér leiðist.