Fyrst beið ég í ofvæni eftir því að Hitt Fíbblið fengi fyrstu tönnina sína. Ég man náttúrulega ekki núna hvenær hún kom, þ.e hvað Sunneva var gömul ..ég bíst við að það hafi gerst nokkuð fljótt eins og flest (og ég segi flest af gildri ástæðu..ættuð að sjá hægaganginn á morgnana) annað sem hún tekur sér fyrir hendur. OOOg svo beið hún í ofvæni eftir að sama tönn myndi detta. LOKSINS:

dsc_0001-2

Já, til hamingju ber að segja. Þessar tennur virtust ætla að sitja sem fastast. Og fleiri eru “rokketander” . Sú sem dó fyrir mörgum árum síðan er líka laflaus og að við höldum, gæti verið ímyndunar aflið að gabba okkur, að þessi við hliðina niðri sé líka laus, eða í það minsta alveg við það að losna.

Nú, annað er ekki að frétta… þannig. Hér verður örugglega ágætis fréttaleysi í smástund. Það er allt í lag, við getum litið á það sem sumarfrí.