Bara aðeins að tékka inn mínir ástkæru áhangendur. Fyrir ykkur sko, svo þið fáið ekki svaka áhyggjur af því að sá brunnur  visku og hnyttni sem ég virðist búa yfir sé nú fyrir alvöru og lífstíð, tómur.

Neinei krakkar mínir,  þetta er allt í ferli eins og meistari Guð segir, allt er eins og það á að vera. Það er verið að púsla púsluspilið as we speak og heildarmyndin er að myndast núna og á eftir og hefur alltaf verið að myndast. Það er ekki um annað að ræða en að stóla á þetta börnin góð.

Að þessu sögðu tilkynni ég hér með að ég bý yfir leyndarmáli (nei, nr. 5 er ekki á leiðinni, bara til að taka það útaf borðinu straX). Það eru útvaldir sem vita það og þeim líður sjálfsagt eins og sérstökustu manneskjum í heimi. Mun deila þessu með alheiminum síðar. JI! Eruði ekki spennt?

Annars er öll tannhjólin smurð og allt tikkar áfram eins og venjulega. Geðmundur er hærri en við, Fröken Fix er hress, Fagri líka og Bjútíbína sömuleiðis. Allir skóla offissíallí byrjaði frá og með gærdeginum, þá skóli, leikskóli, myndlistarskóli, tónskóli og áhugamál önnur. Þannig að veturinn, nú ef vetur skyldi kalla því það er spáð frá 16-24 gráðu hita hér fram til amk 18.sept, fer kólnandi í spánni eftir því sem nær dregur 18., er byrjaður fyrir alvöru og þá líður mér alltaf eins og ég verði að girða mig í brók, bretta upp ermarnar, róa eins og andskotinn og ganga um eins og herfrelsuð kerling. Skunda af stað og græja hitt og þetta.

Óver and át í bili. Ég er búin að vera svo upptekin síðustu vikurnar í afar furðulegu ferli að ég hef varla smellt af mynd. Nú fer ég að demba mér í það.

Góðar stundir elskurnar :)