Hér er bara dásamlegt veður búið að vera. Sól og strönd …. já og svalir er það sem einkennir þessa daga. Ég fór í síðasta prófið 24.júní og er rétt að koma niður núna og ná að njóta daganna sem eru aldrei þessu vant ekki yfir fylltir af einhverju sem gera þarf. Þessvegna var mér alveg sama að ég hefði sofið til kl 9 en ekki kl 7 í morgun, farið þá í andlitsbað og þar á eftir heim að leika mér að búa til nýtt útlit á síðuna mína. Ekki svo að skilja að það hafi bara tekið þennan tíma, það tók marga fleiri daga. Ekki alveg búið en ég gat ekki beðið.