Hún er 5 ára í dag.

Allir vöknuðu egggstra snemma til að fagna afmælisdegi Sunnevu. Hún fékk að opna tvo pakka en svo þurfti að drífa sig í skólana.
dan3 039
Þá þótti mér við hæfi að setja inn nokkrar myndir af henni, henni til heiðurs :)
Hér er hún að sýna listir sínar sl. vor á Drekavöllunum í Hafnó.
krakkar5 008
Hér er hún 3 ára að ég held um vor þá 2005…með snuð.
24.desember2004 014
Þessi mynd er tekin um jólin 2004. Líka með snuð en voða sæt.

systkini í vagninum
Ætli Gummi sé ekki jafngamall Sindra núna svona 20 mánaða (+- einn eða tveir) og hún uþb kannski 3 mánaða..eða 4. Þannig sváfu þau í tvíburakerrunni, alltaf saman. Einn stór og ein lítil.

9.mars.05 067
Þá er hér ein vina mynd frá Hvammstanga. Þarna eru Gummi, Draupnir og Sunneva. Sunneva er 3ára og Gummi 4 ára og Draupnir 5 ára. Þess má geta að hún er í úlpu sem Sindri notar núna..hann er mikið stærri en þau á þessum aldri..
Á morgun verður haldið smá kökuboð. Allir að senda mér góða kökustrauma, ég er ekki viss um að pull that one through án hjálpar ónefndra fjölskyldumeðlima ..ojojoj
En við segjum bara “elsku Sunneva, TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIД