Aldrei er ein báran stök.  Ef ein mígur, míga allar. Fyrr má nú rota en dauðrota.

Þetta eru allt sannar fullyrðingar og það er líka þessi: á mannfólki vex hár.

Já ég veit. Ég er alltaf að tala um hár, en það er heldur ekkert skrítið. Við erum jú fjölskyldan með hárið. Ekkert barn er fætt án þess að vera með hár niður á axlir, sjálf er ég með tagl af hrossi í staðinn fyrir venjulegt fallegt stýrlátt hár. Eiginmaðurinn var með sítt hár yfir dágóðan part lífs síns og hefur safnað hellisbúa andlitshári hér í tíma og ótíma. Sonurinn eldri safnaði hári hér um árið og dóttirin eldri er með hár niður á mitt í þessum töluðu. Yngri sonurinn er með tvílitt hár og yngri dóttirin er með 3falt síðara hár heldur en hinar mörgæsirnar á vöggustofunni, sem eru margarhverjar beisikklí sköllóttar.

Það er ekki það sem ég vil ræða núna heldur sjokkið sem ég fékk í sturtuklefanum inná baðherberginu mínu núnar rétt í þessu. Ég leit niður á fætur mér og þóttist sjá sokkakusk ofan á stóru tánni. Hálfpartinn fast ofan í fellingunni ofan á tánni. Teygði mig niður til að fáetta burt en komst þá að því mér til mikillar, mikillar óstemmningar að ég er með kolsvört hár á stórutánni.

Ég vissi að þau væru þarna, en síðast þegar ég veitti þessu athygli var í sumar og þá voru þau ekki svört.

omg-har-a-tanum

Skoðum þetta aðeins betur. Þetta er hægri fóturinn á mér. Ég er ekki að grínast. Mér hefur vaxið svo góður dúskur þarna ofaná tánni (já ég sé að ég er líka loðin á ristinni) að hann sést vel úr 170cm hæð. Ekki töff.

Getur fólk sem er gagnkynhneigt verið að undrast yfir því hvor í sambandinu sé karlinn?

Ekki er Eigimaðurinn svona loðinn á tánum.. svo ég viti.. það er langt síðan ég sá á honum tærnar. Ertu að fussa yfir því? Þú veist að við erum flutt aftur í stofuna. Ég veit varla hvernig maðurinn lítur út lengur nema fyrir ofan hálsmál. Það er útaf því að þó blessuð dekurdýrin hafi núna öll fengið herbergi sem hægt er að loka og þau dvelja þar inni flestöllum stundum þá eru þau alltaf frammi að kvabba eitthvað einmitt þegar við erum að fara að .. “sofa”.

hringja-strax-i-vaxkonuna

Ég að hringja í algjörri geðshræringu í vaxdömuna til þess að panta tíma hjá henni með það sama.