Þetta er veðurspáin fyrir næstu sólarhringa. Númm, ég geri mér grein fyrir þessu með að Íslendingi á Íslandi kann að finnast þetta ekkert rosalegt, en ég svo finn ég að ég nenni ekki að ræða það frekar hvað kuldinn hér er kaldari en heima. Hann er það bara, þú verður bara að koma og upplifa það ef þú heldur að ég sé einhver kuldaskræfa.

Önnur staðreynd fyrir daginn í dag er að ég er að fara í ferðalag. Ætla að gista á sveitabæ á þessu svæði, þarna á myndinni. Þetta er Vig og er hér á Sjálandi, um það bil 1.5 tíma frá Kaupmannahöfn.

Þarna mun ég semsagt dvelja með öðru fólki og fara með því á fætur kl. 6:45 bæði laugardag og sunnudag, borða með því, fara í yoga með því, hugleiða með því, kyrrja með því, fara í göngu í náttúrunni með því og hlusta á fyrirlestra með því. Ég hlakka rosalega mikið til! Ég hef aldrei prufað neitt svona áður. Ég hrópa húrra fyrir því.