Þetta verður að vera skemmtilegt. Það er ekki hægt að breyta mataræðinu í að borða bara eitthvað sem líkist upp og niðurgangi þegar maður er búinn að borða sætindi svo fjöllum skiptir í fjölda ára.

Geðveikt bilað að ætla sér að gera þetta svona. VEI of drastískt fyrir mig.

Ekki bara fylgdi þessum ógeðis átkúr ógeðisdrykkir heldur líka bilað mikið samviskubit og lélegt sjálfsálit því ég gat ekki borðað þetta.

Þannig að ef maður ætlar að gera þetta og gera þetta vel, þá verður maturinn að vera bragðgóður OG hollur, en ekki bara hollur, fattaru.