Ég veit ekki hvað ég á að gera við þennan síðasta, hálffulla kassa. Í honum er bara eitthvað dót, dót sem er eitthvað og má ekki henda. Þjónar miklum tilgangi í mínu lífi. Sé að það er meira að segja annar kassi með samskonar mikilvægisdóti oní þessum kassa.