Ég er að lesa alveg ótrúlega fallega bók sem heitir Conversations With God-an uncommon dialogue. Bækurnar eru þrjár og er ég á bók númer tvö núna. Byrjaði að lesa í júlí síðasta, stundum er bara hægt að lesa nokkrar setningar í einu, þetta er allt saman svo stórfenglegt.

Það er í alvöru þannig að það er hægt að lifa í algerri gleði, tómri hamingju og allt getur verið eins og það á að vera, ekkert er öfugt. Er það ekki bara eitt það frábærasta sem þú hefur heyrt?

Bókin finnst mér svo frábær að ég hef byrjað að tala um hana við næstum því alla. Ég hef líka gefið hana, já eða á ég að kalla það að troða henni uppí fólk..

Ég mæli með henni og innliti til síns sjálfs.