Nú er komið að því að ég standi mína pligt sem ritstjóri Félagsbúsins. Ég ætlaði sko að bíða þar til ég væri ALVEG búin að pakka upp og gera vort heimili eins flott og það getur verið, og þá taka myndir til að pósta hér á veraldarvefnum. Ég tók alveg til í herbergjum í dag fyrir myndatökuna en þá gerði þetta:

Þetta er hoppukastali gerður úr öllum púðunum í húsinu. Og svo flugu þau hvert á fætur öðru úr kojunum, nema Sindri, hann veit að hann á ekki að þvælast í háloftunum. Þau voru öll eldrauð í framan og sveitt þegar ég stöðvaði þennan hættu leik..það var eftir að ég hafði vaskað upp, sópað gólfið, þvegið eldhúsborðið, hengt upp þvottinn og æft mig á flautuna alveg í friði..múheheheh.
DSC_0076
Og ég, til að róa lýðinn, setti á angurværa tónlist af disknum Pottþétt Vitund. Þá braust út í liðinu þvílík dansgleði. Sindri hermdi eftir systur sinni sem stökk strax í ballett pilsið, sem reyndar var partur af búning því hún var jú Bratz á öskudaginn. Það er gaman að sjá hana því hún ætlar að fara í ballett tíma á þriðjudögum í vetur.

DSC_0083

Sem sagt séð yfir stofuna. Þar er voooðalega gott að vera, undir súð og allt. Frábært þegar rignir.
DSC_0084
Og yfir eldhúsið, eða borðkrókinn öllu heldur. Eldhúsið er eins og ég var búin að segja, nýja ástmey Bóndans. Hann fékk nú bara standpínu þegar hann sá reykháfinn eða hvða þetta er…viftuna, það er ljós í henni og allt.

DSC_0085

Minn ruslahaugur. Það verður seint eða jafnvel aldrei sagt um mig að það sé hreint á skrifborðinu mínu. Samt er ég búin að ljúga því í skólanum að það sé alltaf öllu uppraðað…ég veit ekki hreinlega afhverju mér fannst ég þurfa það. En staðsetningin í íbúðinni er góð, enda valdi ég hana.

DSC_0087

Höll Örverpisins. Örverpið verður alltaf að vera inni hjá okkur. Fær örugglega aldrei sér herbergi. Enda finnst honum jú best að skóbbla annaðhvort móður eða föður úr rúmi vor og liggja þar sjálfur á ská, þvert eða öfugt með alla arma út breidda. Hann er nú alveg met blessaður. Þrumaði framhjá altarinu sem stóð opið, urraði eitthvað og smellti hurðinni aftur. Það lærir sem fyrir þeim er haft..

DSC_0089

Og síðast en ekki síst er það vistarverur Prinsins og Hins Fíbblsins. Hún er í rúminu sem er …það er engin leið að lýsa því..þau eru bæði við veggin og myndin þannig að hvorugt þeirra er innar..eða til vinstri eða hægri..eða hvað..jú, rúmið sem er til hægri, ekki með boltanum undir..ÖÖÖ. Og hann er þá í hinu rúminu. Þarna undir eru skrifborðin þeirra eins og sjá má og ákvað ég að hengja smávegis gardínu þarna á milli borðanna svo þau ættu smá næði. Það er alveg byrjað að röfla um að langa í sér herbergi. Við horfðum á Euro Sport sjónvarpsstöðina um daginn og á var Breikdans keppni. Gvendi varð alveg heillaður og er að spá í að læra breikdans, þau verða s.s al dansandi eftir veturinn. Svo langar mig að þau læri að synda, glatað að vera ósyndur.

Og nýji tölvupósturinn minn er nitta@youmail.dk, en ekki .com eins og ég var svo snilldarlega búin að senda allri símaskránni minni..úffff