Ég er ekki rík af fé, ég er rík af fólki, sem af einhverjum, að mér finnst, pípandi undarlegum ástæðum þykir mjög vænt um mig og vill allt fyrir mig gera. Englar allt um kring sem bera hag minn fyrir brjósti.

Minn hag.. ! Ég sem skipti ó svo litlu máli.

Ég er svo aldeilis hlessa og velti fyrir mér hvað ég gerði til að verðskulda að vera haldið uppi af ást og umhyggju annarra.

Nema þetta sé útaf því að við erum í alvöru eitt, ONE. Og þá finnst mér ekkert undarlegt að ég (þið) berið minn hag fyrir ykkar (mínu) brjósti. Því ég elska ykkur nefnilega líka.