Ég elska bloggið mitt og ég elska að blogga. En þetta blogg er samt einhverra hluta vegna ekki að ganga hjá mér lengur. Ég er ekki innblásin að skrifa um okkar venjulega líf hér á Íslandi. Mun auðveldara að segja sögur þegar maður er fjarri heimahögunum að upplifa eitthvað nýtt á nær hverjum degi,eins og þegar við bjuggum í Kaupmannahöfn.

Ef ég flyt aftur til útlanda mun ég án efa byrja að blogga um hið venjulega líf sem ég lifi aftur.

EN ÞANGAÐ TIL ! (ég er nefnilega nokkuð viss um að ég muni flytja erlendis einhverntíma aftur) hef ég fengið nýja bloggástríðu, hún er um yoga og annað kannski meira í andlega kanntinum heldur en hitt.

Það blogg er hér.

Ég er búin að gera eina færslu, geri aðra á eftir og svo eftir það geri ég fleiri, hvenær veit ég ekki en planið er auðvitað að gera margar :)

Takk fyrir mig samt! Ég elska að skrifa!

Sjáumst á hinu blogginu, if you like :)

LOVE.