Það var þarna fyrir mánuði eða meira að hjólum krakkanna var stolið, hér bara rétt framan við húsið. Númm.. við erum búin að FINNA hjólið hans Búnglings aftur. Er það ekki bara ótrúlegt?!?

Og reyndar er það bara þannig að því hjóli var ekkert stolið svo heimilislaus sígaunabörn gætu haft hjól, eins og ég var búin að hugga mig við.  Nei, það stóð bara pent við eitthvað hús hér í grenndinni. Læst með öðrum lás, sem ekki var farstur við hjólið en okkar lás var ennþá á hjólinu og prufuðum við lykilinn og hann passaði. Svo við (Bóndinn) tókum það aftur heim.

Ýktur dónaskapur.

Fyndna er að ég hélt að ég væri búin að finna hjólið hans líka, því það stendur og er búið að standa nákvæmlega eins hjól, í marga daga, úti í Kvickly. Merkilegur fjandi.