Nei, ég vil ekki opna mig. Jóga er alltaf að biðja mig um að opna mig og ég vil það ekki. Ég vil ekki glenna sundur á mér hnén til að opna mjaðmirnar, það er ekki gott fyrir mig og ég vil heldur ekki opna mig að öðru leiti. Ég fíla ekki að vera opin, mér finnst ég vera berskjölduð og auðsæranleg ef mér finnst ég vera of opin.

Afhverju þurfa allir að vera svona opnir, ha jóga? Ha?