…birtist Gummi, hver hefði haldið að hann væri á leiðinni akkúrat þarna. Ég var skít fegin, enda eins og ég nefndi orðin óþægilega þung (óþægilega…ógeðslega). Hann puðraðist á endanum í heiminn blessaður og verður eiginlega bara hressari með hverjum degi sem líður.

gummi

Byrjað snemma…krææææst. Þetta er rassakrem sko. Zink krem, ef það hjálpar ykkur eitthvað og þetta var ekki í fyrsta skiptið sem svoleiðis fór um allar trissur, ekki veit ég afhverju við læstum kremið ekki inní lyfja skáp hjá Kjartani og Katrínu fyrir ofan eftir fyrsta skiptið, svo við værum viss um að þetta gerðist ekki aftur…en við erum jú eins og við erum. Það má geta þess að hel***** kremið fór ekki úr hárinu á honum fyrr en eftir viku af massívum hárþvotti með sterkri sápu.

gummi2

Gvendi í hnotskurn, hverjum finnst ekki betra að djamma á bleiupakka.
gummi3
Í Háagerði á Hvammstanga. Það er ekkert betra en sólríkur dagur á Hvammstanga, sérlega ef það er hægt að vera í arsenal stuttbuxum af Jóa frænda, stígvélum og með eyrnatólaútvarpið hans pabba.

gummi4

Og það er ekki annað hægt en að draga Drottninguna meðan hún les bók í þvottagrindinni…. með kúreka hatt, annars væri þetta ógerlegt með öllu.

gummi_sunneve

Og þarna eru þau, litla Gunna og litli Jón. Svo sæt. Hann 4 og hún 3 held ég, eða hann 5 og hún 4..ég er bara ekki viss. Voðalega er ég gloppótt.

IMG_0932

Ein að lokum, til heiðurs Gumma sem er nú orðinn í alvörunni stór. Maður verður varla sætari, hvaððá meira kúl en hann er. Meira um afmælisveisluna og hvað eina annað sem rekið hefur á daga okkar undanfarið, síðar.