Ég er komin með nýtt á prjónana. Í þetta skipti er það peysa á mig sjálfa. Hún er græn… aftur! Ég keypti uppskrift að peysu sem ber nafnið Drift, hjá henni Kristen Finlay og er að prjóna peysuna úr Tough Love Sock frá SweetGeorgia í litnum Pistachio. Ég hef alltaf verið svolítið græn, þannig að litavalið kemur kannski ekki á óvart, þó það sé reyndar stutt síðan ég prjónaði græna peysu á sjálfa mig. En peysan Drift er ferlega flott finnst mér.

byrjunin-a-drift

Peysan er prjónuð að ofan og niður, með fallegu gatamunstri í berustykkinu. Ég sat á leikvelli með dóttur mína yngstu í gær í góða veðrinu og prjónaði þar eins og vindurinn.