Þetta er rassinn á undirritaðri. Hinn flottasti afturendi, ég er nokkuð ánægð með lögun og áferð (ennþá amk).

Fyrst ég var að baula yfir Facebook statusum þá ætla ég að koma með rassinn á mér sem tilraun til að vega upp á móti öllum “stút” myndunum og “sad eyes” myndunum og öllum “skinku” myndunum á Facebook og bloggsíðum netheima. Þú veist.. myndunum þar sem allar vinkonur mínar myndu grænar af öfund segja hvað ég væri sæt, sexy og ekkert um það hversu falleg manneskja ég er. Kroppsdýrkun alltaf hreint.. minnir mig á að ég þarf desperately að vaxa..

Ég er að sjálfsögðu með stút á öllum vörum sem þarna finnast og vel rjóð í kinnum. En útaf því að ég er ekki pervert og ekki rugludallur þá hef ég auðvitað rassinn í buxunum.