Það er bara fyrsti í aðventu núna á morgun! Er ekki bara alltaf merkilegt hvað tíminn er fljótur að líða?

Mér datt í hug að deila með þér nokkrum hugmyndum sem ég fann á ferð minni um Pinterest, sem allar tengjast aðventunni og jólunum.

Advent inspiration.Fröken náttúra er sannkallaður listamaður og könglarnir hennar eru fullkomnir, en mér líkar mjög vel þessi aðferð við að bæta pínulitlum lit í skreytinguna.

Advent inspiration.

Aðventukransar. Ég er persónulega mjög hrifinn af þessum til vinstri, meirihátta flottar kindurnar sem hanga þarna niður úr, spurning um að skreppa útí náttúruna og finna sér greinar og köngla.

Sá til vinstri er líka flottur, dúska aðventukrans. Ég er samt svolítið hrædd um að þessi myndi fuðra upp á núll einni, eins gott að gleyma sér ekki með hann!

Advent inspiration.

Mögulega ein þau sætustu aðventudagatöl sem ég hef séð. Tekur ábyggilega ekki langan tíma að smella í svona.

Advent inspiration.Og fleiri skemmtileg aðventudagatöl. Einu áhyggjurnar sem ég myndi hafa af þessu er hve lítið þetta er.. verður ekki að vera pláss fyrir amk eina fílakaramellu?

advent inspiration

Heklað þríhyrninga jóladagatal og hekluð jólatré!