Á ég ekki bara að fara að segja nei við hormónaflippin á heimlinu? Í alvöru. Afhverju ætti ég að láta þau hafa pening fyrir bíó, pening sem ég þarf að trunta við vinnu með blóði, svita og tárum til að ná í þegar það eina sem þau megna á móti er að segja “helst ekki” þegar ég bið þau að fara í fyrir heimilið í búðarferð?

  1. Ekki segja mér að ég hafi verið svona, kannski veit ég að ég var þannig, ég er ekki viss, en það er bara ekki hjálplegt komment né líklegt til árangurs.
  2. Ekki segja að allir táningar séu svona. Það eru það ekki allir og hananú.

Börnin sem fengu of mikið eru mætt aftur.