Já er ekki allur fjandinn til. Búin að vera súr og erfið vika og verður sennilega pínu erfitt áfram. Tókum við framtíðarheimilinu í tótal rúst og í algjörri drullu.

Ofan á allt er íbúðin sýkt af möl flugum. Svona sem borða allan matinn manns.

Svosem ekkert mikið um það að segja. Hef ekki tekið uppúr einum einasta kassa. Ef ég ætti milljónir hefði ég gefið skít í þessa íbúð og flutt eitthvað annað. Dauðstressuð um að þurfa að díla við möl allar götur héðan í frá.

Mér er næstum því allri lokið. Það var nú leiðinlegt.