Fyrir vikuna núna til 12.feb.
Í kvöld: Dómínós pizza.. (úbbs, ég var svo ótrúlega lengi í búðinni)
Laugardagur
- Hádegi: skyr og þannig
- Kvöld: Heill kjúlli með kryddi, eitthvað gott salat og fermingarfranskar (piknik)
Sunnudagur
- Hádegi: Hafragrautur og eitthvað stöff
- Kvöld: Lasagne úr bókinni hennar Vigdísar fréttakonu, Í matinn er þetta helst, mjög góð bók og enn betra lasagne, grænt og hvítlauksbrauð með.
Mánudagur
- Hádegi: Afgangur af lasagne í nesti handa mér.
- Kvöld: Soðin ýsa með kartöflum. Hérna ætla ég að elda of mikið af ýsu og gerast ótrúlega djörf og elda pastarétt líka
Þriðjudagur
- Hádegi: Pastaréttur sem ég var svo djörf að elda fyrirfram. Það er ekki til uppskrift. Í þessu verður samt paprikuostur og rjómi, beikon, skinka, pastað og paprika ábyggilega.
- Kvöld: Sjávarréttasúpa ala Eiginmaður. VÁ hvað hann er góður í að gera sjávarréttasúpu. Í þetta mun ég setja afgangs ýsu. Það er heldur engin uppskrift af henni, hann töfrar hana fram.
Miðvikudagur
- Hádegi: afgangur af fiskisúpu, klárlega!
- Kvöld: Eggjakaka eða hræra eftir hvernig tekst til, salat og eitthvað gott brauð
Fimmtudagur
- Hádegi: Afgangur af eggjaköku ef einhver verður, annars neyðist ég til að gera mér eitthvað öðruvísi nesti.
- Kvöld: Pizzulengja úr einni af bókunum hennar Nönnu.
Föstudagur
- Hádegi: Afgangs pizzulengja..mmmm
- Kvöld: Fylltar paprikur. Já, ég elda líka stundum nútíma útgáfu af mat.
Laugardagur
- Hádegi: Eitthvað sem hendi er næst..(lesist: datt ekkert í hug og gleymdi þessu svo)
- Kvöld: Fiskur í raspi, kartöflur og grænt
Sunnudagur
- Hádegi: Makkarónugrautur
- Kvöld: Kjötbollur með ritskexi. Þarf að verða mér útum uppskriftina af því. Kartöflur og grænt.
Mánudagur
- Hádegi: Afgangur af alltof mörgum kjötbollum.
- Kvöld: Pastaréttur. Þessi verður töfraður fram með því sem til verður í ísskápnum.
Þriðjudagur
- Hádegi: Afgangur af pastarétt.
- Kvöld: Þessi er í næsta seðil, ef hann verður gefinn út. Þú ættir að vera spenntur lesandi góður.
Leave A Comment