Seinbúin 10 pása.

Veit ekki afhverju svona margir, flestir Íslendingar búsettir erlendis, héldu að Ísland hefði bara brunnið til kaldra kola og hér væri fólk bara ráfandi um í reiðileysi í rifnum lörfum og með aleiguna á bakinu, eftir að Hrunið ..hrundi yfir landið.

Heyrði tilkynnt í fréttum í morgun að til landsins hefðu flutt 600 og eitthvað manns með erlendan ríkisborgararétt og að það væri næstum 300 fleiri en flust hefðu frá landinu.

Sá sem ætlar að vera með gorgeir og fjasa um að það hafi nú bara verið ribbaldalýður frá Póllandi, Lettlandi eða öðru “þannig” landi fær kúk í poka í ljósum logum á tröppurnar sínar frá mér.