Mamma?!?! Varst þú í Köben fyrir einhverjum árum síðan að láta einhvern bera töskuna fyrir þig? Ég reyndar veit alveg að þú varst hér, hvað sirka 1978 eða 1979. Úff, það hlýtur nú bara að hafa verið meiri ferðin. Og varla förum við að kenna saklausu barninu (mér) um þá salíbunuferð… **hóst**

Ég fékk þetta líka sjokk þegar ég var að bruna, eins og ég geri alltaf,  í vinnuna einn eftirmiðdaginn. Hjólaði framhjá þessari mynd og neyddist til að stoppa til að skoða betur þar sem ég var í alveg hálfa mínútu, handviss um að þetta væri mynd af mömmu frá því hún var únglíngur eða eitthvað svoleiðis, eða um tvítugt.

Því miður kom í ljós að þessi mynd er ekkert af henni mömmu, heldur einhverri annarri konu.