Mér leiðist meira en góðu hófi gegnir. Enda hef ég lítið að gera, sem er í algerri andstöðu við nánast allan minn líftíma.

Svo var ég of góð með mig og þóttist vera eitthvað, þannig að mér bæði leiðist og svo skammast ég mín líka.

Í leiðindunum sit ég samt við tölvuna í rauðum sokkabuxum (nei ekki eingöngu)  og með rauðan varalit. Hvað maður gerir ekki ..