Líka fallegt
About the Author: Kristin Guðmunds
Ég get ómögulega ábyrgst að þú ekki farir að gráta því þú hefur fengið svo mikinn aulahroll. Ég get heldur ekki ábyrgst að þú móðgist ekki eða pissir í buxurnar af hneykslan. .. ég ætla að skrifa flestum stundum bara það sem mér er hugleikið þá stundina. Ég hef síðan tröllatrú á því að fólk hafi rétt á, og geri það reyndar ótt og títt, að skipta um skoðun.
Sem eitthvað nýtt (frá janúar 2016) þá eru hér inni á síðunni hekl og prjónaleiðbeiningar sem fyrst voru á síðu sem tengdist garnverslun sem ég rak.
Aðeins meira :) Bróðir Evu er
(eða var)búsettur hér á landi heitir Dan Cassidy ,er mikill fiðlusnillingur og spilaði með Pöpunum !Það var mikil eftirsjá í Evu og hún átti marga aðdáendur hér á landi. Það hefur gengið frekar illa að fá diska með henni,en vonandi hefur verið bætt úr því.
Kv.Lóa
takk fyrir viskuna ;) Ég kíkti á wikipedia og jú, hún dó úr krabbameini 1996. Síðasti performancinn var á stað sem heitir the bayou og var einmitt þetta lag (sennilega þetta myndband!) síðasta lagið sem hún tók. Þar voru meðal annarra fjölskyldumeðlimir og vinir, var flutt á sjúkrahús strax á eftir og hún dó tveimur mánuðum síðar. Nú ætla ég að kaupa mér disk með Evu Cassidy!
aðeins meiri fróðleikur, en það sem ég veit um Evu cassidy, er nú ekki mjög mikið, en ég veti þó að hún er látin og lést mjög ung, held úr krabbameini. Frábær söngkona, svo þægileg. Annars, ástarkveðja
mor.
hehe,þetta er Eva Cassidy, ég var nú bara að uppgötva hana sjálf í fyrradag ca. hún er æði finnst mér. Þér eruð alltaf velkomin :)
Opinberun fáviskunnar: hver er þetta? Annars væri ég til í að kom til ykkar, ca í næstu viku, vera í ca mánuð (kannski ekki inn á ykkur, þið mynduð nú alveg mygla þá) það myndi vera dejligt. Ég myndi ekki hugsa um neitt það sem ég þarf að hugsa um hér… :D
o sammála :) Eva var svo frábær söngkona.
Heyrumst fljótlega.
Kv. Lóa