Ég verð að hryggja dugmikla lesendur mína með því að ég kemst ekki í að skrifa hér skemmtiefni. Það er svo mikið að gera að ég hef ekki farið í sturtu í viku, ekki greitt á mér hárið í tvær vikur, þeir sem hafa séð á mér hárið vita þá að það er orðið eins og fuglahreiður, gott ef ég vaknaði ekki við tíst í fyrrinótt…

Það snjóaði hér áðan…merkilegt nokk. Það er ískalt og fegin var ég að hafa farði í pollabuxurnar í morgun þó það væri sólskin, því hnakkinn á hjólinu hafði fennt í kaf.
Ég hef skriftir aftur þegar um hægist, ég bíst við að það verði í byrjun desember…allir að bíða spenntir eftir því og kíkja og kommenta, senda emil eða eitthvað…hringja, senda venjulegt bréf..
Yfir og út í bili.