Það er að koma ísöld. Það sést bersýnilega á því hve loðnar konur eru að verða nú til dags. Ég efast stórlega um að þær í gamladaga hafi bara alltaf verið að skuplast útí búð að kaupa allt þetta vax sem við í nútímanum eyðum aleigunni í. Þetta er eðlileg ályktun miðað við að mannkynið sé að missa frá sér augntennurnar útaf því að þær eru ekki þarfar lengur.

Þessvegna hlýtur það eiginlega að vera bara þannig að fyrst að við konur erum að verða loðnari og loðnari að það sé yfirvofandi ísöld, við komum til með að þurfa á öllum þessum lopa að halda.