Veit ekki ungafólkið á Íslandi að það er fólk sem hefur ekki upplifað annað en allsnægtir….ALLSNÆGTIR!!!!!!!!!!! Ég veit ekki betur en að það sé ekki einusinni langt síðan að það var ekki einusinni sjónvarp til á Íslandi (ég man meira að segja eftir sjónvarpsfríi á fimmtudögum), það taldist eðlilegt að búa með fjölda barna í einsherbergis íbúð, og það vour örugglega ekki til þrjátíu gerðir af klósett pappír hjá kaupmanninum á horninu…
Það eru svona skrílsbjánaháttur sem sést í þessu videói sem lætur mig skammast mín fyrir að vera Íslendingur. Halda blessuð börnin að það muni hjálpa Íslandi að vera með frekju og fíbblagang og góla útí loftið og leggjast í jörðina og þykjast vera kúl? Svei mér, ég hljóma eins og gömul frænka (með fullri virðingu fyrir ykkur kæru frænkur, mér þykir reyndar mjög vænt um ykkur allar með tölu:)).
Halló, skiptir ekki máli með hvernig pappír þú skeinir þig…er ekki vænlegra að reyna að manna sig og biðja um kjark til að breyta því sem hægt er að breyta og jafnvel hjálpa til með því að sýna að minnsta kosti lágmarks náungakærleik eða tillitssemi eða eitthvað lúvvlí?
Ég sé alveg hvaða fjölskyldum blessaðir bjánarnir koma frá, það eru þeir sem sitja bara heima og þusa og hafa sem hæst um hvað allir ráðherrarnir eru gargandi vitlausir, hvað smábankamennirnir séu miklir bjánar og erkifíbblin í Seðlabankanum hafi nú bara alveg eyðilagt þeirra líf en hafa að sama styrkeika og þusið ekki vitsmuni til að gera neitt.
Eða allavega, mér finnst þetta hallærislegt…ég fékk pínu aulahroll.
Satt best að segja þá höfum við á Félagsbúinu það ekkert súper sterkt í fjárhagnum og við höfum alveg verið að horfa á engan pening og þá er ég ekki að meina að við séum að sjá fram á engan pening heldur stóðum við alltí einu einn daginn með engan pening, ekki einu sinni eina krónu. Námslánin hafa eins og hjá flestum námsmönnum étist upp löngu fyrr en áætlað var. Ekki sé ég að það hjálpi okkur á Félagsbúinu að hlaupa gólandi útá götu og láta öllum illu látum og kannski múna á þá sem vinna í íslenska sendiráðinu hér.. (en ef það er til sönnun á að það virki þá er ég tilbúin til að fórna mínum afturenda í það, það eru fáir með eins flottan rass og ég)
Amk situr stjórnin ennþá í sínum stól og meðan það er fólkið sem kemur til með að ákveða fyrir þjóðina þá er rétt að vera ekki að trufla það. Héldu kannski únglýðurinn að þau gætu gert þetta eitthvað betur.
Já, bless, ég er bara orðin bálreið útaf þessu.
ég vil endilega fá að sjá myndina af þér og Rúna Júl.!! en ég er sammála ,það er sjálfsagt að mótmæla en það er líka lágmark að vita svona nokkurn vegin hverju er verið að mótmæla !!! Og svo koma með myndina :)
ástarkveðja
mAmma
Nú finnst mér alveg tilefni til, vegna andláts stór-töffarans Rúna Júl., að þú birtir á þessari síðu þinni myndina sem er til af þér og honum! eða hvað finnst þér
ástarkveðja,
mor
Ein sammála hér… Ég skammast mín fyrir að vera únglýður.. er ég það ekki? Hvar var þetta fólk þegar lánin streymdu og ekki-peningaflóðið reið yfir Ísland? Ætli það hafi ekki bara tekið sér eitt lán eða lifað á mömmu og pabba láni og ekki fundist neitt athugavert við það? Á meðan margir sáu að eitthvað var bogið við þetta og þá hefði verið tími til að mótmæla ríkisstjórn (með friðsamlegum og KURTEISUM hætti…) Heyr heyr – leyfum fólkinu að vinna í friði – ég hef fulla trú á að það sé að gera sitt besta miðað við aðstæður…
Ég verð nú bara að viðurkenna að ég er hjartanlega sammála ykkur! Leyfum fólkinu að vinna í friði, sem er að vinna fyrir okkur.
íslensk kveðja,
mor, kannski ekki í hópi únglýðs, en alls ekki gömul…
Mikið er ég þér hjartanlega sammála..
Mér hefur fundist danskir “krakkar” vera ofdekraðir vælukjóar (sbr. ungdómshúsið um árið og bara í skólanum mínum). Í gær rann upp fyrir mér það ljós að íslenskur ungdómur væri sennilega ekkert skárri.