Við ákváðum fyrir löngu síðan að umræðan um kynlíf yrði opin á heimlinu. Nei! Ég ætla að stoppa þig strax! Við erum ekki að tala um að við Eiginmaður séum alltaf að tala um okkar eigið kynlíf, það er einkamál, nei bara svona þegar/ef ungmennin hefðu einhverjar spurningar að það væri opið fyrir það.

Hér eru smokkar til að grípa og dömubindi eru ekki dularfult leyndarmál.

Ég hef reyndar engan áhuga á að vita hvort þau séu byrjuð að dúdda í öðrum manneskjum, en ég vil að þau viti að það að njóta ásta heitir einmitt að “njóta” ásta því það á að vera gott og ekki leyndó eða neitt til að skammast sín fyrir. Ég vil að þau elski og séu elskuð. Ég held ekki að það sé til neitt aldurstakmark fyrir svoleiðis stöff.

Á þessum nótum, aðeins til að útskýra afhverju það voru uppi umræður um eftirfarandi við eldhúsborðið heima hjá mér, þá, eftir nokkurt fjas um líkamslokka ýmiskonar, hvar við hlógum að því að hafa haft einn slíkan í tungunni bæði tvö og Eiginmaðurinn í naflanum líka, sagði Úngmennið hátt og snjallt hvort Eiginmaðurinn ætti ekki að fá sér lokk í hinn háttvirta kóng.

Eiginmaðurinn, sem er öllu vanur og manna verstur í klámkjafti, varð hvergi banginn og spurði Úngmennið hvort það hefði einhverntíma séð hund reyna að fara í gegnum hurð með of stóra grein….