Mér finnst Vala Matt ekki vera neitt leiðinleg. Ég hef heyrt óánægju raddir í þjóðfélaginu yfir því hvernig blessunin hlær og hvað hún er eitthvað pirrandi og svona.

Vala Matt er bara pípandi hress. Hvað með það þó hún hafi átt marga kærasta? Hún er bara svona hress að geta átt marga kærasta. Ég hrópa húrra fyrir því.

Hún er líka með eindæmum jákvæð og bara upplífgandi.

Jáhhh.. Vala Matt er tildæmis miklu skemmtilegri en þvaðrið sem rennur uppúr stjórnmálafólki. Mikið djöfull er það nú ógeðslega bara gubbleiðinlegt. Og niðurdrepandi.

Afhverju í andsk. er fólk að tilbiðja stjórnmálamenn og forseta en gera svo grín og niðurlægja Völu Matt?

Ég er bara hér í bláendann á þessari hugleiðingu orðin alveg fjúríus úr reiði yfir að það sé alltaf verið að útvarpa og sjónvarpa svona fúllyndum en ekki bara einhverjum jákvæðnisþætti með Völu Matt. Meðstjórnandi Völu Matt gæti verið Sirrý og þeim til aðstoðar gæti verið Ragnhildur Steinunn.

Ég myndi ábyggilega nenna að horfa á sjónvarpið ef þær væru með þátt. Annars munu nágrannar mínir sem búa í mjög undarlega staðsettu húsi hér fyrir neðan mig fá sjónvarpið mitt frítt í gegnum þakið á húsinu.