Mig langar í gróðurhús. Ætti ég að byggja eitt? Get ég reiknað með að þegar ég segist ætla að byggja eitthvað að það sé eins og þegar ég stofna hljómsveit, það er alltaf í hausnum á mér bara sem það gerist. Þetta gróðurhús hérna fyrir ofan er náttúrulega tryllt flott. Og það er meira að segja hægt að fá leiðbeiningar um hvernig á að byggja  það. Ég treysti mér alveg að fara eftir leiðbeiningum.

Ég get samt ekki haft alveg svona stórt gróðurhús.. nema ég ætli að byggja yfir nýja húsið mitt í fyrirheitna landinu.

Ætli það kosti alltaf það sama að kaupa efni í svona og byggja sjálfur eins og að kaupa tilbúið? Veit þetta einhver?