Píanóið fagra sem ég sakna

Gaf píanóið og fékk uppþvottavél í staðinn. Ekki frá þeim sem ég gaf píanóið heldur frá Alheiminum sjáðu til. Afhverju ekki bara að stóla á það að gefa það sem maður þarf að gefa og treysta að maður fái gefins það sem maður þarf í staðinn. Ég hef stundað þetta lengi enda reddast allt hjá mér, sama hvað ég kvarta mikið í millitíðinni.

Það má náttúrulega deila um það hvort ég þurfi uppþvottavél, en þægilegt verður það.