Ég er alveg búin að tapa mér í að skoða gamlar myndir. Og þar sem ég er með eilífar áhyggjur af því að ég ætti í raun að vera að gera eitthvað alla annað ákvað ég að í kvöld væri í lagi að dóla bara eitthvað þannig ég er búin að fara í gegnum alla geisladiska með myndum á og viða að mér skemmtilegum. Verst er að flakkarinn okkar er bilaður, annars hefði ég auðvitað farið í gegnum það allt líka og verið að í alla nótt.

Hér er myndaalbúm sem er aðallega frá því krakkarnir voru yngri, elsta held ég síðan við bjuggum í Hafnarfirði.