Hlakka til að komast í yoga aftur. Ætli ég byrji ekki hérna heima hjá mér, svona meðan ég kemst takmarkað frá húsi.

Gaman að segja frá því að það gæti verið að ég byrji að kenna hér í Keflavík í janúar, fer eftir ýmsu náttúrulega en vonandi gengur allt upp.

faranleg-yogastada

Að þessari æðislegu stöðu. Veit ekki hvort hún beri nafn. Fann hana á einhverri facebook síðu sem ég hef sennilega líkað við fyrir mistök. Síðan heitir Yoga Inspiration og með myndinni var póstað þessu kvóti:

“When I let go of what I am, I become what I might be.” ~ Lao Tzu

Jáhhh.. Fyrir það fyrsta þá er þetta kvót eitt það fáránlegasta sem ég hef á ævinni lesið. Meikar engan sens… þegar ég sleppi tökunum á því sem ég er, verð ég það sem ég gæti verið.

Ég er viss um að maður eigi að sleppa tökunum, punktur, og þá stendur eftir það sem maður í sannleika er.

Og þessi staða.. Ertekkjað kidda mig? Hún er fáránleg.